Tollflokkar
Fyrir hverja reikningslínu þarf að slá inn tollflokk vöru. Í boði eru eftirfarandi leiðir til að komast að réttum tollflokki.
- Tollflokkavísir - Tillögur frá Tollvís
- Kerfið fyllir sjálfkrafa inn tollflokk ef að fyrirtæki hefur skráð tollflokk á sama vörunúmer og sent það inn til tollsins.?? Tékka
- Ef að slegið er inn vörunúmer eða vörulýsing sem að kerfið kannast við frá öðru fyrirtæki gefur það tillögu að þeim tollflokki
- Ef að sá tollflokkur er valinn af notanda þá mun Tollvís sjálfkrafa nota þann tollflokk næst.
- Spyrja gervigreind
- Tollvís notar gervigreindarmódel sem að leitar í tollskrá frá Tollinum. Gervigreind kemur með tillögur ef að til er líklegur tollflokkur, annars er hægt að senda inn skýrari lýsingu og fá tillögu frá gervigreind.
- Gervigreinadrmódelið skilar ekki svari ef að ekki næst að finna tollflokk sem passar við vörulýsingu. Ef að minni en 90% líkur á að svarið sé rétt þá skilar módelið ekki neinu.
- Leita í tollskrá
- Hægt er að vinna sig í gegnum tollflokka þar til að réttur flokkur er fundinn. Þá er fyrst valinn yfirflokkur, svo er unnið sig niður í gegnum undirflokka þar til að fundinn er einn tollflokkur sem á við um vöruna.